
Kæru iðkendur, Nú er sumarið rétt handan við hornið og við höfum sett saman mjög spennandi sumardagskrá í samstarfi við Asana Jóga. Þið getið mætt í tíma bæði hjá Yoga & Heilsu og hjá Asana Jóga og kynnst mismunandi kennurum og áherslum. Dagskráin hefst 6. maí og við erum með ótrúlegt tilboð þangað til 1. maí. Aðeins 40 þúsund krónur

Hér má sjá stundaskrá 2026 sem tekur gildi 5. janúar 2026. Fjólubláir tímar eru opnir tímar og er hægt að skrá sig í þá í gegnum Mindbody Fitness and Wellness appið. Það er hægt að nálgast það í gegnum QR kóðann á myndinni. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allar fallegu jógastundirnar á liðnu ári.

Ljósin á aðventunni eru kærkomin á dimmasta tíma ársins hér á norðurhveli jarðar. Kertaljós og seríur hvert sem augað lítur og fjölgar eftir því sem líður á mánuðinn. Útiljós og inniljós í alls konar litum, blika í myrkrinu og jafnvel líka um miðjan daginn þegar sólin skríður upp yfir húsþök og fjöll. Tilfinningar sem ljósin

Fyrsta hamingjustundin í nýju húsnæði verður haldin föstudaginn 7. nóvember. Leyfðu þér að stíga út úr amstri dagsins og inn í róandi og endurnærandi stund þar sem þú færð að næra líkama, huga og sál. Hamingjustundin sameinar slökunarjóga, leidda djúpslökun og gong tónbað í flæði sem styður við innri frið og vellíðan. Takmarkaður fjöldi í boði!

Opið hús laugardaginn 4. október kl 11.30-13.30. Tækifæri fyrir öll að kíkja á salinn okkar, spjalla við kennara og leggjast svo á dýnuna og slaka á undir handleiðslu Níllu. Við bjóðum upp á te og eitthvað gott að nasla. Allir velkomnir! Hlökkum til að sjá ykkur.

Við erum komnar með nýtt húsnæði! Það er stór og bjartur salur í Faxafeni 10, 2. hæð. Við erum komnar á fullt að mála og setja upp milliveggi en svo byrjum við með námskeið í september. Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur á nýjum stað en áfram með metnaðarfulla kennslu og hlýlegt

Námskeið m.a. fyrir þau sem glíma við stífleika í liðum og vilja auka styrk og liðleika. Námskeiðið hentar einnig vel fyrir þau sem vilja ná tökum á streitu í gegnum einstaklingsmiðaða hreyfingu. Við liðkum og styrkjum líkamann í gegnum jógastöður, fjölbreyttar styrktaræfingar og djúpar jógateygjur með styðjandi öndunaræfingum. Með því að læra meðvitaða líkamsbeitingu og

Kæru iðkendur, Því miður mun jógastúdíóið okkar loka í lok maí hér í Síðumúla 15. Við leitum að nýju húsnæði og getum vonandi opnað aftur í haust á nýjum stað. Þetta er auðvitað virkilega leiðinlegt því salurinn okkar er einstaklega góður jógasalur að svo mörgu leyti og við höfum átt margar góðar stundir þar. Húsnæðið