Í september hefjast fjögur fjölbreytt námskeið hjá Yoga og Heilsu. Hvort sem þú vilt liðka líkamann, byggja upp styrk, læra grunninn í jóga eða skapa meiri ró í líkama og huga ættir þú að geta fundið námskeið við þitt hæfi.
Nýtt í haust er Liðkandi jóga, mjúkt og nærandi námskeið fyrir öll getustig. Auk þess verða í boði námskeiðin Kjarnajóga, Yoga-Grunnur og HugarRó – Í átt að betri heilsu.
Takmarkaður fjöldi sæta er í boði og því hvetjum við áhugasöm til að tryggja sér pláss tímanlega.
Nýtt námskeið: Liðkandi jóga
Finnur þú fyrir stífleika í vöðvum eða liðum og langar að öðlast aukna hreyfigetu og meiri vellíðan? Liðkandi jóga er nýtt á dagskrá hjá okkur í haust og er sérstaklega ætlað að hjálpa þátttakendum að losa um spennu, kyrra hugann og endurnæra taugakerfið.
Í tímunum vinnum við með mjúka hreyfingu, teygjur, slökun og æfingar úr yin yoga, bandvefslosun og öndun. Einnig notum við hjálpartæki á borð við pullur, sandpoka, bolta og jógabelti til að finna viðkvæma punkta og aðlaga álagið að þörfum hvers og eins.
Námskeiðið hentar öllum getustigum og getur verið sérstaklega gagnlegt fyrir þau sem glíma við stoðkerfisvanda, gigt eða langvarandi stífleika.
Kennari: Ásta
Tími: Fimmtudagar kl. 10:30–11:30
Dagsetningar: 3. september–8. október, samtals 6 vikur
Verð: 26.900 kr.
Kjarnajóga
Kjarnajóga hentar vel þeim sem vilja auka styrk og liðleika, vinna gegn stífleika í liðum og ná betri tökum á streitu með einstaklingsmiðaðri hreyfingu.
Við liðkum og styrkjum líkamann með jógastöðum, fjölbreyttum styrktaræfingum, djúpum jógateygjum og styðjandi öndunaræfingum. Áhersla er lögð á meðvitaða líkamsbeitingu og sterkari tengsl líkama og hugar.
Kennari: Ásta
Tími: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:15–19:30
Dagsetningar: 1. september–22. október, samtals 8 vikur
Verð: 43.000 kr.
Yoga-Grunnur
Langar þig að byrja í jóga eða rifja upp undirstöðurnar? Yoga-Grunnur hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja styrkja grunninn og dýpka iðkun sína.
Farið verður yfir öndun, teygjur og helstu jógastöður, auk þess sem þátttakendur læra að aðlaga stöðurnar að eigin líkama. Notuð eru hjálpartæki á borð við kubba, pullur, stóla og teppi og öllum tímum lýkur með notalegri slökun.
Kennari: Helga
Tími: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:00–18:00
Dagsetningar: 1. september–22. október, samtals 8 vikur
Verð: 41.000 kr.
HugarRó – Í átt að betri heilsu
HugarRó er mjúkt og nærandi námskeið þar sem við gefum okkur tíma til að kyrra hugann, róa taugakerfið og hlúa að líkama og sál.
Með mjúkum hreyfingum, teygjum, öndunaræfingum, yoga nidra-hugleiðslu og djúpslökun vinnum við að aukinni vellíðan og tökum skref í átt að betri heilsu. Námskeiðið hentar einstaklega vel þeim sem eru að jafna sig eftir veikindi eða glíma við mikla streitu, kvíða eða kulnun.
Kennari: Kristín Steindórs
Tími: Þriðjudagar kl. 13:30–14:45
Dagsetningar: 1. september–6. október, samtals 6 vikur
Verð: 26.900 kr.
Takmarkaður fjöldi sæta er í boði. Tryggðu þér pláss og taktu á móti haustinu með auknum styrk, mýkt og ró.