Skammdegið er tími kyrrðar og endurnýjunar. Þegar náttúran hægir á sér gefst okkur dýrmætt tækifæri til að gera slíkt hið sama.
Komdu með okkur í einstaka vellíðunarferð 12. – 15. nóvember á Strandir þar sem við sameinum jóga, náttúru, heitar laugar og notalega samveru í fallegu umhverfi Bjarnarfjarðar.
Við dveljum á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði, þar sem hótelið verður eingöngu frátekið fyrir hópinn okkar.
Við munum byrja dagana á jóga, öndunaræfingum og núvitund.
Njótum þess að slaka á í náttúrulega heita vatninu á Laugarhóli. Förum í gönguferðir í einstöku landslagi. Borðum hollan og góðan mat og eigum notalegar kvöldstundir saman.