Kæru iðkendur,
Nú er sumarið rétt handan við hornið og við höfum sett saman mjög spennandi sumardagskrá í samstarfi við Asana Jóga. Þið getið mætt í tíma bæði hjá Yoga & Heilsu og hjá Asana Jóga og kynnst mismunandi kennurum og áherslum. Dagskráin hefst 6. maí og við erum með ótrúlegt tilboð þangað til 1. maí.
Aðeins 40 þúsund krónur fyrir allt sumarið!
Allir tímar eru opnir tímar þannig að þið mætið þegar það hentar ykkur. Bara muna að skrá sig í tímann á heimasíðunni eða í appinu – og skrá sig úr tímanum ef þið hættið við. Þannig gengur allt miklu betur, allir fá pláss og skipulag allt betra. Ef aðeins 1-2 eru skráð í tíma er mögulegt að tíminn falli niður, þannig að skráningin skiptir miklu máli fyrir alla.
Við vitum að sumrin geta verið annasamur tími og því höfum við ákveðið að setja verðin í algjört lágmark, svo flestir geti haldið áfram iðkun sinni yfir þann tíma sumarsins sem hentar.
Við vonum innilega að sem flestir sjái sér fært að kaupa sumarkort. Það skiptir okkur miklu máli – því það er áskorun að halda stöðinni gangandi yfir sumarmánuðina. Með ykkar stuðningi getum við haldið áfram að skapa þetta fallega samfélag sem við eigum saman.
SUMARKORT – TILBOÐ TIL 1. MAÍ

Gefðu þér tíma fyrir líkama og huga í sumar.
6. maí – 20. ágúst (lokað 27. júlí – 4. ágúst)
Allt að 12 tímar á viku, kennsla fyrir öll stig og reyndir kennarar sem taka vel á móti þér
Iyengar jóga, Hatha jóga, Yin jóga og Restorative jóga.
40.000 kr. fyrir allt sumariðeða12.900 kr. á mánuði (4 mánaða skuldbinding)
Velkomin í ró, styrk og vellíðan.