Helga kláraði 200 tíma jógakennaranám frá Light Yoga Warriors í desember árið 2019, 50 tíma yin yoga kennaranám frá Sólum sumarið 2021 og kláraði 50 tíma yoga nidra kennaranám frá Karma jógastúdíó núna í lok apríl 2026.
Markmið mitt er að skapa öruggt og nærandi rými þar sem þátttakendur geta hægt á, sleppt tökum og tengst sjálfum sér á dýpri hátt. Ég vinn með rólegar æfingar sem styðja við slökun, jafnvægi og vellíðan, án pressu eða samanburðar. Helstu áhugamál mín eru skíði, gönguferðir og jóga þess á milli. Mér finnst fátt betra en að elda góðan mat og njóta í góðra vina hópi.