Staðurinn
Chora Sfakion er lítið og sjarmerandi sjávarþorp á suðurhluta Krítar og húsið (Yoga on Crete, https://www.yogaoncrete.gr/) er staðsett í hlíð með stórfenglegu útsýni yfir fjöllin og hafið. Þú getur notið þess að ganga um hlíðarnar, slaka á á ströndinni, fara í bátsferðir eða notið útsýnisins frá húsinu. Dásamleg náttúrufegurð, einfaldleiki og hlýja umvefur staðinn.
Hitinn er fullkominn, hlýtt á daginn og svalara á kvöldin.
Hvernig jóga og fyrir hverja
Jógað í ferðinni hentar byrjendum sem lengra komnum, konum og körlum. Fyrri jógatími dagsins er Hatha-jóga sem á vesturlöndum er algengasta jógaformið og þar leggjum við áherslu á að fara vandlega í stöður sem styrkja og liðka okkur og lærum hvernig best er að nota jógabúnað til að styðja við líkama hvers og eins til að njóta iðkunar jóga. Seinni jógatími dagsins er Yin-jóga, Restorative-jóga og/eða yoga nidra sem eru liggjandi og sitjandi stöður sem mýkja upp bandvefinn og losa um stíflur og stirðleika.


