Kjarnajóga

Námskeið

Helstu upplýsingar:

Þriðjudaga og fimmtudaga

27. október - 17. desember 2026

KL. 18:15 - 19:30

Kennarar: Ásta

Verð: 43.000 kr

Deila:

Kjarnajóga - 8 vikna námskeið

Námskeið m.a. fyrir þau sem glíma við stífleika í liðum og vilja auka styrk og liðleika. Námskeiðið hentar einnig vel fyrir þau sem vilja ná tökum á streitu í gegnum einstaklingsmiðaða hreyfingu. 

Við liðkum og styrkjum líkamann í gegnum jógastöður, fjölbreyttar styrktaræfingar og djúpar jógateygjur með styðjandi öndunaræfingum. 

Með því að læra meðvitaða líkamsbeitingu og að kyrra hugann náum við auknum tengslum við líkama og huga og getum betur tekist á við verkefni og áskoranir líðandi stundar.  

Hjá Yoga&Heilsa er áhersla lögð á jákvæða líkamsvitund í hlýlegu umhverfi þar sem hver einstaklingur skiptir máli.

Önnur námskeið

Liðkandi jóga

Markmið námskeiðisins er að losa um stífleika í vöðvum og liðum, kyrra hugann og endurnæra taugakerfið. Aukin hreyfigeta, betri líkamsvitund og aukin andleg vellíðan er það sem nemendur geta átt von á að fá á námskeiðinu.
Við notum stöður og æfingar úr yin yoga, bandvefslosun og öndun ásamt mjúkri hreyfingu, teygjum og slökun til að stuðla að auknu jafnvægi og vellíðan í líkama og huga.
Unnið er með aukahluti eins og pullur, sandpoka, bolta og jógabelti til að finna viðkvæma punkta í vöðvum og í kringum liði og breyta álaginu þannig að losni um stíflur. Námskeiðið er fyrir öll getustig og er sérstaklega miðað við að gagnist einnig þeim sem glíma við stoðkerfisvanda eða gigt. Öllum námskeiðum fylgir ókeypis aðgangur í alla opna tíma í stundaskrá.

Lesa »

Yoga – Grunnur

Námskeiðið hentar bæði byrjendum í jóga og þeim sem vilja læra meira og dýpka iðkun sína. Farið er yfir grunnundirstöður í jóga og hvernig hægt er að aðlaga stöðurnar þannig að henti hverjum og einum. Aukum styrk, liðleika og lærum að kyrra hugann. Allir tímar enda á slökun.

Hjá Yoga&Heilsu er áhersla lögð á jákvæða líkamsvitund í hlýlegu umhverfi þar sem hver einstaklingur skiptir máli.

Lesa »