Kæru iðkendur!
Þriðjudaginn 25. ágúst bjóðum við upp á prufutíma í fjórum ólíkum námskeiðum hjá Yoga og heilsu.
Þetta er kjörið tækifæri til að skoða aðstöðuna, hitta kennarana og finna þann tíma sem hentar þér best.
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.

Prufutímar þriðjudaginn 25. ágúst
Kl. 10:30 – Liðkandi jóga með Ástu
Markmið námskeiðsins er að losa um stífleika í vöðvum og liðum, kyrra hugann og endurnæra taugakerfið. Við vinnum meðal annars með yin yoga, bandvefslosun, öndun, mjúkar hreyfingar, teygjur og slökun.
Námskeiðið er fyrir öll getustig og hentar einnig vel þeim sem glíma við stoðkerfisvanda eða gigt.
Námskeiðið er sex vikur og aðgangur að opnum tímum á stundaskrá er innifalinn.
Kl. 13:30 – HugarRó með Kristínu
Á námskeiðinu kyrjum við hugann, róum taugakerfið, mýkjum líkamann og vinnum að aukinni andlegri vellíðan með mjúkum hreyfingum, öndunaræfingum og yoga nidra.
Námskeiðið hentar sérstaklega vel þeim sem glíma við streitu, kvíða, þreytu eða kulnun og vilja efla fókus og andlega heilsu.
Námskeiðið er sex vikur og aðgangur að opnum tímum á stundaskrá er innifalinn.

Kl. 17:00 – Yoga Grunnur með Helgu
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja læra meira og dýpka iðkun sína. Farið er yfir grunnundirstöður jóga og hvernig hægt er að aðlaga stöðurnar að hverjum og einum.
Við aukum styrk og liðleika, lærum að kyrra hugann og endum alla tíma á slökun.
Námskeiðið er átta vikur og aðgangur að opnum tímum á stundaskrá er innifalinn.
Kl. 18:15 – Kjarnajóga með Ástu
Kjarnajóga hentar meðal annars þeim sem glíma við stífleika í liðum og vilja auka styrk og liðleika.
Við liðkum og styrkjum líkamann með jógastöðum, jógaflæði, fjölbreyttum styrktaræfingum, djúpum teygjum og styðjandi öndunaræfingum. Með meðvitaðri líkamsbeitingu og kyrrð eflum við tengsl líkama og huga.
Námskeiðið er átta vikur og aðgangur að opnum tímum á stundaskrá er innifalinn
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram á yogaogheilsa.is. undir stundaskrá, bóka tíma.
Við tökum vel á móti öllum og leggjum áherslu á jákvæða líkamsvitund, einstaklingsmiðaða kennslu og hlýlegt umhverfi þar sem hver einstaklingur skiptir máli.
Við hlökkum til að sjá þig
Kennarar Yoga og heilsu
Faxafeni 10, 2. hæð