Kjarnajóga

Námskeið

Helstu upplýsingar:

Þriðjudaga og fimmtudaga

21. október - 27. nóvember 2025

KL. 18:15 - 19:45

Kennarar: Ásta

Verð: 26.900 kr

Deila:

Kjarnajóga - 6 vikna námskeið

Námskeið m.a. fyrir þau sem glíma við stífleika í liðum og vilja auka styrk og liðleika. Námskeiðið hentar einnig vel fyrir þau sem vilja ná tökum á streitu í gegnum einstaklingsmiðaða hreyfingu. 

Við liðkum og styrkjum líkamann í gegnum jógastöður, fjölbreyttar styrktaræfingar og djúpar jógateygjur með styðjandi öndunaræfingum. 

Með því að læra meðvitaða líkamsbeitingu og að kyrra hugann náum við auknum tengslum við líkama og huga og getum betur tekist á við verkefni og áskoranir líðandi stundar.  

Hjá Yoga&Heilsa er áhersla lögð á jákvæða líkamsvitund í hlýlegu umhverfi þar sem hver einstaklingur skiptir máli.

Önnur námskeið

Með mýkt & mildi

Á námskeiðinu vinnum við með streitu, verki og þreytu í gegnum slökunarjóga (yin og restorative) og djúpslökun eða yoga nidra, sem er í raun liggjandi leidd hugleiðsla.

Lesa »

Yoga – Grunnur

Námskeiðið hentar bæði byrjendum í jóga og þeim sem vilja læra meira og dýpka iðkun sína. Farið er yfir grunnundirstöður í jóga og hvernig hægt er að aðlaga stöðurnar þannig að henti hverjum og einum. Aukum styrk, liðleika og lærum að kyrra hugann. Allir tímar enda á slökun.

Hjá Yoga&Heilsu er áhersla lögð á jákvæða líkamsvitund í hlýlegu umhverfi þar sem hver einstaklingur skiptir máli.

Lesa »