Ásta Þórarinsdóttir

Yogakennari og eigandi

Ásta er eigandi Yoga&Heilsu og kom inn í rekstur stöðvarinnar árið 2020 eftir að hafa kennt við stöðina frá 2018. Ásta hefur lokið jógakennaranámi hjá YogaWorks 200 RYT, 100 tíma Hatha yoga (traditional) hjá YogaShala, 50 tíma yin yogakennaranámi hjá YogaWise, 50 tíma yin yogakennaranámi hjá Bernie Clark og Diana Batts og 50 tíma yin yogakennaranámi hjá Beta Lisboa. Ásta hefur einnig lokið yogakennaraprófi 85 TT RPYS fyrir meðgöngujóga (vinyasa) og eftirmeðgöngujóga og auk þess sótt fjölda námskeiða um jóga, hreyfingu, anatómíu og kvenheilsu. – Ásta hefur glímt við bakverki allt frá því hún var unglingur og þekkir vel fylgifiska þess. Í yoga hjá góðum kennurum fann hún heilsurækt sem sameinar styrktaræfingar, liðleika og slökun og segir að jöfn ástundun sé lykilatriði til að halda líkama og sál í góðu formi.

? „Yoga er nærandi bæði fyrir líkama og huga og ég er í miklu betri tengslum við mína líðan þegar ég stunda yoga.“
? „Ég kenni aðallega hatha yoga og yin yoga.“
? „Uppáhalds stöðurnar mínar eru jafnvægisstöður, vegna þess að þær eru lúmskt erfiðar og þú veist aldrei hvernig til tekst í hvert og eitt skipti. Jafnvægi er háð svo mörgum þáttum líkama og huga að þarf ekki nema að eitthvað eitt sé ekki ´í stuði´ – og þá ertu búin að missa jafnvægið.“
? „Ég hef gaman að allri ræktun, sérstaklega þegar ég sé árangurinn fljótt eins og í matjurtarækt og þegar ég afla mér fróðleiks sem ég næ að miðla strax áfram. Stöðnun er ekkert skemmtileg.“