Hamingjustund & ókeypis hádegistímar

Fyrsta hamingjustundin í nýju húsnæði verður haldin föstudaginn 7. nóvember.

Leyfðu þér að stíga út úr amstri dagsins og inn í róandi og endurnærandi stund þar sem þú færð að næra líkama, huga og sál. Hamingjustundin sameinar slökunarjóga, leidda djúpslökun og gong tónbað í flæði sem styður við innri frið og vellíðan. Takmarkaður fjöldi í boði!

Við byrjum með mjúkum jógahreyfingum sem losa um spennu og opna líkamann fyrir öndun og flæði. Í kjölfarið tekur við leidd djúpslökun þar sem hugurinn fær að slaka og taugakerfið að hvílast. Lokahluti stundarinnar er gong tónbað, þar sem hljómarnir frá gonginu flæða um rýmið og hjálpa líkamanum að finna jafnvægi, dýpri slökun og innri kyrrð. ??Vert er að hafa í huga að ekki er mælt með gong tónbaði fyrir barnshafandi né þau sem eru með gangráð/bjargráð.

Þessi stund er kjörin leið til að vinna á móti álagi, styrkja taugakerfið og fá hugann til að hvíla.

Eftir tímann finnur þú fyrir meiri mýkt, ró og tengingu við þig – fullkomin leið til að ljúka vikunni í hamingju og ró. ??

Verð 3.300 kr.

Gott er að koma í víðum og hlýjum fötum sem þrengja ekki að og í  hlýjum sokkum. Þessi stund er opin öllum sem vilja næra líkama og sál í hlýju og notalegu umhverfi.

Stundina leiðir Nílla L. Einarsdóttir jógakennari og þerapisti.

Í NÓVEMBER VERÐA FRÍIR HÁDEGISTÍMAR Á ÞRIÐJUDÖGUM

Ókeypis jóga í hádeginu á þriðjudögum í nóvember í boði indverska sendiráðsins. Við erum mjög spenntar að fá kennara á vegum sendiráðsins til að kenna jóga í stúdíóinu okkar.

Kennarinn heitir Vandana og hún er með yfir 10 ára reynslu í að kenna jóga og jógaþerapíu. Fyrsti tíminn er 4. nóvember. 

Deila: