4 vikna lokað námskeið, kennt tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20.00. Námskeiðið hentar einkar vel þeim sem eru að prófa Yoga Nidra í fyrsta skipti en einnig þeim sem eru vönum. Hver tími er á bilinu 45-60 mín. Eftir því sem líður á námskeiðið þá lengist tíminn sem sjálf hugleiðslan stendur yfir.
Yoga Nidra er form af hugleiðslu þar sem iðkandinn liggur og lætur fara vel um sig og er leiddur inn í djúpa slökun. Þessi tegund af hugleiðslu getur hjálpað til við að losa um streitu, bæta svefn, ná tökum á kvíða, þunglyndi og ýmsum einkennum kulnunar meðal annars.
Yoga Nidra hefur verið kallað svefn jóganna þar sem nidra þýðist beint sem svefn. En ólíkt svefni er Yoga Nidra meðvituð djúp slökun þar sem hugurinn er í ástandi milli svefns og vöku. Einmitt í því ástandi er hægt að koma meira jafnvægi á hugann, losa hann undan neikvæðu hugsanamynstri, minnka stress og streitu, og létta á ýmsum líkamlegum kvillum sem fylgja auknu álagi í hraða og annríki nútímans. Þegar við komumst úr áreiti hugans og niður í undirmeðvitundina þá gefum við líkamanum okkar frið til að heila sig og endurnærast. Um 35 mínútur af Yoga Nidra er álíka endurnærandi og 3 tíma svefn.
Uppbygging námskeiðisins:
Vika 1 – Kynnast yoga nidra
Vika 2 – Hlusta á hjartað
Vika 3 – Innri ró
Vika 4 – Líkamsvitun & orkustöðvarnar
Innifalið: Tveir tímar á viku í 4 vikur, aðgangur í alla opna tíma í stundaskrá og einnig aðgangur í spa og tækjasal fyrir eða eftir yogatíma
Allur búnaður er á staðnum en við mælum með að hver iðkandi hafi sinn búnað með sér, svo sem jógadýnu og teppi og jafnvel kodda.
*Áskrifendur hjá Yoga&Heilsu geta skráð sig frítt á þetta námskeið ef pláss leyfir*+
Skráning er ekki hafin, en ekki hika við að skrá þig á biðlista.