fbpx

Yogaferð til Krít 24. – 31. maí 2023

Retreat á Krít

Helstu upplýsingar:

Við höfum valið af kostgæfni stað sem sameinar bæði heimilislega gistingu og mjög góða jógaaðstöðu. Við vorum þarna vorið 2022 og urðum hugfangnar af einfaldleikanum, fegurðinni og yogaaðstöðunni. Staðurinn er Chora Sfakion sem er lítið sjávarþorp á suðurhluta Krít sem heldur sérstöðu, menningu og friðsæld eyjarinnar ólíkt því sem gjarnan gerist á vinsælum ferðamannastöðum. Húsið er staðsett í hlíð með stórfenglegu útsýni yfir fjöllin og hafið. Þú getur notið þess að ganga um hlíðarnar, slaka á á ströndinni eða notið útsýnisins frá húsinu. Maturinn er eldaður af meistarakokkinum Marie, sem töfrar dásamlegt grænmetisfæði frá bændum nágrannabyggðarinnar og gjöfullar náttúru eyjarinnar.

Áhersla er lögð á góða yogakennslu þar sem þú færð tækifæri til þess að vaxa og dafna sem iðkandi bæði andlega og líkamlega. Við mælum eindregið með að þú stundir yoga reglulega fram að ferðinni til þess að þú fáir sem mest út úr þessu yogaferðalagi. Við leggjum áherslu á að iðka og kenna samkvæmt hefðum Iyengar.  Iyengar yoga byggir á einstaklingsmiðaðri kennslu, þar sem hver yogaiðkandi fær leiðbeiningar og stuðning sem hentar líkamsbyggingu og getustigi. Við notum yogabúnað, t.d. stóla, belti, kubba og pullur til að hver og einn fái sem mest út úr yogaiðkun sinni.

 Hámarksstærð hóps er 12 manns.

Kennarar og kennsluaðferðir

Kennarar í þessari ferð eru Bríet Birgisdóttir og Unnur Einarsdóttir (mögulega verður Ásta Þórarinsdóttir líka fyrstu dagana – sjá nánar um hana í fyrri ferðinni).

Bríet er hjúkrunarfræðingur með margra ára reynslu sem yogaiðkandi og yogakennari en hún hefur síðustu ár verið að tileinka sér aðferðafræði Iyengar Yoga sem hún hefur lært bæði í Noregi og í Ástralíu. Hún hefur verið aðstoðarkennari fyrir kennara hjá YogaWorks og hjá YogaWise. 

Unnur hefur langa reynslu bæði frá yoga og nuddi en hún er bæði Kundalini yogakennari og Iyengar yogakennari.  Hún starfar sem heilsunuddari ásamt því að vinna með nálarstungur. Hún hefur einnig lokið námi í heilun.   

Við munum að mestu vinna samkvæmt Iyengarhefðinni en við blöndum yogahefðum og aðferðum eins og okkur þykir virka best fyrir þá sem eru í hópnum. Við munum einnig vinna með öndunaræfingar daglega tengt jógaiðkuninni. Þessi ferð hentar mjög vel þeim sem vilja byggja sig upp og vinna með styrk, liðleika og fá  hugleiðslu sem hluta af daglegri iðkun. 

Gisting

Húsið er gamalt steinhús staðsett á Chora Sfakion á eyjunni Krít og er aðeins í 5 mín göngufjarlægð frá bænum. Húsið tekur 8 (10 með kennurum) manns í gistingu og er með tvö þriggja manna herbergi og eitt tveggja manna auk gistirýmis fyrir kennara. Athugið að það þurfa að lágmarki að gista 8 í húsinu. Þau sem vilja vera ein í herbergi þurfa að gista á nærliggjandi hótelum (100-300m fjarlægð). Verð og herbergjaskipan kemur fram neðar í textanum. Gistingin er mjög einföld og heimilisleg en ef óskað er eftir meiri “lúxus” má benda á hótelið Elena sem er í um 10 mín göngufjarlægð. Við leggjum höfuðáherslu á yogaiðkunina og góða hvíld bæði andlega og líkamlega í þessu yogaferðalagi. 

Maturinn

Maturinn er bara stórkostlegur, grænmetisfæði, allt eldað á staðnum með fersku hráefni frá Krít. Morgunmatur er í boði alla morgna (nema daginn sem við komum) auk kvöldverðar 5 kvöld á meðan á dvöl stendur. Maturinn er innifalinn í verði og á við bæði fyrir þau sem gista í húsinu og á hóteli. Við borðum úti á veitingastöðum 2 kvöld.

Yoga

Mjög góð aðstaða fyrir yogaiðkun á viðargólfi með allan yogabúnað sem til þarf og nóg pláss. Hægt er að vera innandyra ef rignir og utandyra milli ólífutrjáa ef veður er gott (sem það er næstum alltaf).

Við iðkum daglega yoga og þú getur svo notað aðstöðuna og gert eins mikið yoga og þú vilt.

Kennt verður að mestu í anda Iyengar og Yin en eigum eftir að blanda fleiri yogahefðum saman auk þess sem lögð verður áhersla á daglega hugleiðslu.

Verð

Verð er fyrir 8 daga, gistingu í 7 nætur með mat (morgunmat alla daga og kvöldmat 5 kvöld).  Boðið er upp á hugleiðslu og Yogakennslu alla morgna (nema komudag) auk Yin yoga/Restorative Yoga síðdegis (nema brottfarardag).

Gisting – Jógahúsið – Fullt

  • 3ja manna herbergi á jarðhæð með eigin baðherbergi. 
  • Verð kr.150500,- á mann miðað við 3 í herbergi.

Gisting – Jógahúsið – Fullt

  • 3ja manna herbergi á 2. hæð með baðherbergi og stórum svölum með útsýni.
  • Verð kr.150500,- á mann miðað við 3 í herbergi.

Gisting – Jógahúsið – Fullt

  • 2ja manna herbergi á 2. hæð með baðherbergi og stórum svölum (athugið að það er aðeins tjald sem skilur salerni frá svefnaðstöðunni – hentar því ekki fyrir alla).
  • Verð kr.153320 á mann miðað við 2 í herberg

Gisting Hótel

Gisting á hóteli á best við fyrir þá/þær sem vilja vera einar í herbergi. Ath. að við þurfum að lágmarki að hafa 8 persónur sem gista í Yogahúsinu.

Skilmálar:

Greiða þarf kr. 35.000  í staðfestingargjald sem er ekki endurgreitt ef þátttakandi hættir við ferðina. Ef viðkomandi fær annan aðila til að taka sitt pláss er það sjálfsagt og fær þá endurgreitt. 

Vinsamlega sendið tölvupóst á yoga@yogaogheilsa.is ef þú vilt skrá þig í ferðina. 

Innifalið:

  • Gisting 7 nætur
  • morgunmatur 7 morgna
  • Kvöldmatur 5 kvöld
  • Dagleg hugleiðsla, yoga 2x á dag (nema fyrsta og síðasta dag – þá 1x)          
  • Aðgengi að yogasal og búnaði
  • Skipt á lökum x1
  • Aðgengi að eldhúsi og möguleiki á að fá að þvo þvott í þvottavél

Ekki innifalið:

  • Flug (ath. mögulega er þörf á auka gistingu vegna millilendinga þar sem ekki er víst að flogið verði beint)
  • Ferðir til/frá flugvelli
  • 2 kvöldverðir á veitingastöðum
  • kostnaður við leigubíla/rútur 
  • Kostnaður við skoðunarferðir (leigubílar inngöngugjald í Imbros gljúfur) Er yfirleitt 2 – 6 evrur skiptið á mann. 
  • Annar matur en það sem er boðið upp á
 

Dagsskipulag

Skipulag er að mestu það sama, hugsanlegt er að síðdegis yoga hliðrist til þegar farið verður í ferðir eins og í Imbros glújfur, Ilmolíugarðinn og hugsanlega fleiri ferðir. Ferðir verða ákveðnar þegar komið er á staðinn og við finnum bestu tímasetningar út frá t.d. veðri. Góður tími er á milli morguntíma og síðdegistíma þar sem hægt er að slaka á og gera það sem þig lystir. 

Dagur 1 – komudagur

  • 17:00 Hugleiðsla – Núvitund – innleiðing. 
  • 17:30 – 18:30 Síðdegis yoga
  • 19:30 Kvöldmatur

Dagur 2 

  • 07:00  – 07:30 Mindfulness 
  • 8:00 – 10:00 Morgunyoga
  • 10:00 Morgunverður (brunch)
  • 17:30 Síðdegis yoga
  • 19:30 Kvöldmatur

Dagur 3

  • 07:00  – 07:30 Mindfulness 
  • 8:00 – 10:00 Morgunyoga
  • 10:00 Morgunverður (brunch)
  • 17:30 Síðdegis yoga
  • 19:30 Kvöldmatur

Dagur 4

  • 07:00  – 07:30 Mindfulness 
  • 8:00 – 10:00 Morgunyoga
  • 10:00 Morgunverður (brunch)
  • 17:30 Síðdegis yoga
  • 19:30 Kvöldmatur

Dagur  5

  • 07:00  – 07:30 Mindfulness 
  • 8:00 – 10:00 Morgunyoga
  • 10:00 Morgunverður (brunch)
  • 17:30 Síðdegis yoga
  • 19:30 Kvöldmatur

Dagur 6

  • 07:00  – 07:30 Mindfulness 
  • 8:00 – 10:00 Morgunyoga
  • 10:00 Morgunverður (brunch)
  • 17:30 Síðdegis yoga
  • 19:30 Kvöldmatur

Dagur 7

  • 07:00  – 07:30 Mindfulness 
  • 8:00 – 10:00 Morgunyoga
  • 10:00 Morgunverður (brunch)
  • 17:30 Síðdegis yoga
  • 19:30 Kvöldmatur

Dagur 8 – brottfarardagur

  • Yoga ef tími leyfir
  • Morgunmatur 

 

Það er heilmikið að skoða í nágrenninu og hægt að fara í styttri og lengri göngutúra um bæinn eða upp í hæðirnar/fjöllin (t.d. litlar kirkjur í hellum og ótrúlegt útsýni). Það er svo líka dásamlegt að leyfa sér að slaka á.

*Engum er skylt að vera með í skoðunarferðum, það getur komið einhver viðbótarkostnaður í tengslum við skoðunarferðir svo sem leigubílar, bátsferðir, matur og þess háttar.